Consulting
Fish packaging
Fish processing
Fish trade
Fisheries I.T
Fishing gear
Handling/grading
Other equipment
Ports/transport
Ships/boats
LanguageNAS Verkefnið
 

Útflutningsráð Íslands annast rekstur NAS verkefnisins (North Atlantic Solutions) fyrir eiganda þess Samstarfsvettvang sjávarútvegs og iðnaðar. Tilgangur og markmið NAS verkefnisins er MARKAÐSSETNING íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja erlendis. Megináhersla er lögð á MARKAÐSSETNINGU gegnum Internetið með öflugri skáningu á leitarvélar og viðkomandi vefi auk reglulegra tölvupóstsendinga á erlenda og innlenda markhópa verkefnisins. MARKAÐSSETNING verkefnisins fer einnig fram með þátttöku í erlendum og innlendum sjávarútvegssýningum, dreifingu kynningarefnis, þátttöku í viðskiptasendinefndum og aðstoð við erlenda viðskiptaðila sem vilja eiga viðskipti við fyrirtæki sem taka þátt í NAS verkefninu.

Árangur af starfi NAS verkefnisins er ótvíræður sem má merkja bæði á miklum fjölda erlendra fyrirspurna og stöðugt aukinni umferð um vef verkefnisins http://www.nas.is/ Á hverjum degi aflar fjöldi fulltrúa erlendra fyrirtækja sér upplýsinga um íslensk sjávarútvegsfyrirtæki, vörur þeirra og þjónustu í gegnum NAS verkefnið.

Einu skilyrðin fyrir þátttöku í NAS verkefninu eru að viðkomandi fyrirtæki tengist sjávarútvegi og stundi eða ætli að hefja útflutning. Þeir sem vilja fá frekari upplýsingar er velkomið að hafa samband við undirritaðan.


Ingólfur Sveinsson - verkefnisstjóri

ÚTFLUTNINGSRÁÐ ÍSLANDS
Borgartún 35, 105 Reykjavík
Sími: 511 4000, Fax: 511 4040
T-póstur: ingolfur@utflutningsrad.is
Vefir: utflutningsrad.is , www.nas.is